8 ágú. 2004Stelpurnar í U16 gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Svía í úrslitaleik um annað sætið á Evrópumótinu í Eistlandi 66-63. Fyrr í dag tryggði Litháen sér sigur á mótinu með því að leggja Finna. Stelpurnar okkar enduðu því með sama vinningshlutfall og Litháen (7 sigra og 1 tap) en þar sem Litháen hafði betur gegn okkur á dögunum þá sigra þær mótið. HÉR ERU ALLIR AGNDOFA YFIR STÓRKOSTLEGUM ÁRANGRI STÚLKNANNA OG VEKJA ÞÆR MIKLA ATHYGLI HÉR Í EISTLANDI. ÞÆR ERU AÐ FLESTRA MATI SIGURVEGARAR MÓTSINS. Allt liðið skilaði sínu hlutverki óaðfinnanlega í dag og eru stelpurnar i skýjunum með árangur sinn. Guðrún Harpa Guðmundsdóttir 16 stig (6/4 í þriggja og 4/4 í vítum). Helena Sverrisdóttir 15 stig, 11 fráköst, 9 stoðsendingar. María Ben Erlingsdóttir 14 stig 7 fráköst. Bryndis Guðmundsdóttir 10 stig, 11 fráköst. Bára Bragadóttir 7 stig, 3 fráköst. Ingibjörg Vilbergsdóttir 4 stig, 4 fráköst.