5 ágú. 2004Ísland og Pólland hafa 7 sinnum mæst á körfuknattleiksvellinum. Fyrst heimsóttu Pólverjar okkur Íslendinga árið 1966 en það voru fyrstu landsleikir Íslands á heimavelli. Pólverjar höfðu orðið í sjötta sæti á Ólympíuleikunum í Japan árið 1964 og voru með mjög sterkt lið enda sigruðu þeir í báðum leikjunum örugglega. Þjálfari Íslands í þessum leikjum var Helgi Jóhannsson Níu árum seinna, 1975, mættust liðin í Wolfenburg í Þýskalandi en þar fór fram undankeppni Evrópumótsins, þarna tapaði Ísland með mestum mun sem orðið hefur fyrir Pólverjum og þjálfari var Einar Bollason. 1986 komst Ísland upp úr riðli C-þjóða í körfuknattleik og tók þátt í Evrópukeppni B-þjóða í Liége í Belgíu og þar lék liðið vð Pólverja og tapaði enn einu sinni. Einar Bollason var aftur kominn í þjálfarastólinn með Gunnar Þorvarðarson sér við hlið. Milli jóla og nýárs 1991 komu svo Pólverjar í heimsókn og léku þrjá æfingaleiki. Strax í fyrsta leik vannst fyrsti sigurinn, leikið var í Keflavík og sigruðu Íslendingar með 14 stigum. Pólverjar unnu annan leikinn en síðasta leikinn vann Ísland með 2 stigum eftir framlengingu. Torfi Magnússon og Glenn Thomas stýrðu íslenska liðinu á þessum tíma. 16.1.1966 Reykjavík Ísland - Pólland 44:91 18.1.1966 Reykjavík Ísland - Pólland 43:68 12.5.1975 Wolfenbuettel 19. EM Ísland - Pólland 71:123 16.5.1986 Liége 25. EM-B Ísland - Pólland 56:95 27.12.1991 Keflavík Ísland - Pólland 91:77 28.12.1991 Reykjavík Ísland - Pólland 74:79 29.12.1991 Borgarnes Ísland - Pólland 116:114