3 ágú. 2004Stelpurnar i U-16 liðinu gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Letta í dag, sem fyrir þennan leik voru taplausar. Leikurinn var mjög jafn og spennandi allan leikinn og réðust úrslitin ekki fyrr en á síðustu sekúndum leiksins. Staðan í hálfleik var 40-37 Íslandi í vil. Helena Sverrisdóttir átti frábæran leik í dag eins og áður og skoraði hún 37 stig, tók 21 frákast, var með 7 stolna bolta og gaf 4 stoðsendingar. María Ben skoraði 15 stig, Bryndís Guðmundsdóttir skoraði 9 stig og tók 10 fráköst. Á morgun er kærkomið frí hjá stelpunum eftir að hafa spilað 5 daga í röð gegn sterkum þjóðum. Kveðja frá stelpunum í U-16. mt: Helena Sverrisdóttir átti enn einn stórleikinn í sigri Íslands á Eistlandi í dag.