29 júl. 2004Önnu Maríu Sveinsdóttur vantar nú aðeins einn sigur í þann þrítugasta med íslenska landsliðinu en hún hefur verið í sigurliði í 29 af þeim 57 landsleikjum sem hún hefur spilað. Jöfn Önnu Maríu er Guðbjörg Norðfjörð fararstjóri en hún var 29 sinnum í sigurliði í þeim 53 landsleikjum sem hún spilaði á ferlinum. Anna María og stelpurnar stefna á að ná þessum áfanga gegn Azerbadjan í kvöld. Birna Valgarðsdóttir er reyndar aðeins einum sigurleik á eftir þeim stöllum og gæti vel náð 30. sigrinum einnig á Promotion Cup í Andorra. Alda Leif Jónsdóttir er síðan þriðji leikmaður liðsins sem er meðal átta hæstu en hún hefur verið í sigurliði í 21 af 37 landsleikjum sínum. Flestir sigurleikir spilaðir med landsliðinu: 29 Guðbjörg Norðfjörð (53) 54,7% 29 Anna María Sveinsdóttir (57) 50,9% 28 Birna Valgarðsdóttir (50) 56% 27 Kristín Blöndal (45) 60% 27 Helga Þorvaldsdóttir (48) 56,3% 25 Hanna Björg Kjartansdóttir (39) 64,1% 21 Alda Leif Jónsdóttir (37) 56,8% 21 Linda Stefánsdóttir (39) 53,8%