28 júl. 2004Íslenska kvennalandsliðið fór hamförum í hraðaupphlaupunum í fyrsta leiknum gegn Skotum á Promotion Cup í fyrradag. Íslenska liðið vann leikinn örugglega med 41 stigs mun, [v+]http://www.kki.is/leikvarp/tolfraedi.asp?Leikur=1500002016_1_1[v-]85-44[slod-] en þar af hafði íslenska liðið 35 stiga yfirburdi í stigum skoruðum úr hraðaupphlaupum, 45-10. Íslenska liðið verður að halda áfram ad nýta sér hraðaupphlaupin í næstu leikjum. Birna Valgarðsdóttir fór mikinn í hraðaupphlaupunum því hún skoraði öll 12 stigin sín undir þeim kringumstæðum og átti einnig 2 af 3 stoðsendingum sínum vid sömu aðstæður. Birna kom því alls að 17 hraðaupphlaupsstigum eða 7 meira en allt lið Skota. Alda Leif Jónsdóttir átti flestar stoðsendingar í hraðaupphlaupum eða alls 4. Hraðaupphlaupsstig eftir leikhlutum (Ísland-Skotland): 1. leikhluti: 16-2 2. leikhluti: 11-0 3. leikhluti: 15-4 4. leikhluti: 3-4 Fyrri hálfleikur: 27-2 Seinni hálfleikur: 18-8 Samtals: 45-10 Stig íslensku stelpnanna úr hraðaupphlaupum: Birna Valgarðsdóttir 12 Anna María Sveinsdóttir 9 Signý Hermannsdóttir 7 Hildur Sigurðardóttir 6 Erla Þorsteinsdóttir 5 Alda Leif Jónsdóttir 4 Erla Reynisdóttir 2 Stoðsendingar íslensku stelpnanna í hraðaupphlaupum: Alda Leif Jónsdóttir 4 Signý Hermannsdóttir 3 Hildur Sigurðardóttir 3 Birna Valgarðsdóttir 2 Erla Reynisdóttir 1 Sólveig Gunnlaugsdóttir 1