27 júl. 20048 ungir körfuknattleiksmenn úr Reykjavík eru á leið á Borgarleika unglinga í Cleveland á morgun. Borgarleikar unglinga (International Children´s games) hafa verið haldnir um víða veröld í 35 ár. Leikarnir eru keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum fyrir ungmenni á aldrinum 12-15 ára. Samtökin sem standa að þessum leikum eru viðurkennd af Alþjóða Ólympíunefndinni frá 1990. ÍBR hefur með stuðningi frá ÍTR sent þátttakendur á Borgarleika frá árinu 2001 og er þetta er í fyrsta skipti sem körfuknattleiksmenn eru sendir til leiks. Verkefnið sem körfuknattleiksmennirnir fara í er International children games, sem haldnir verða í Cleveland í Ohio fylki í Bandaríkjunum. Stjórn ÍBR hefur ákveðið að senda þátttakendur fædda 1989 í eftirfarandi íþróttagreinum á Borgarleikana 2004: Knattspyrnu (8 stelpur) Körfuknattleik (8 strákar) Frjálsum íþróttum (4 stelpur og 4 strákar) Með íþróttamönnunum fara þrír þjálfarar og 3 fararstjórar. Nafnalisti körfuknattleiksþáttakenda: Anton Örn Helgason ÍR Arnór Sigurgeir Þrastarson Valur Jens Gísli Heiðarsson Fjölnir Páll Fannar Helgason Valur Pétur Þór Jakobsson KR Sindri Már Kárason Fjölnir Snorri Páll Sigurðarson KR Þorvaldur Hauksson ÍR Þjálfari er Ingi Þór Steinþórsson.