23 júl. 2004Hinar árlegu æfingabúðir KKÍ og Baden (áður And1) verða haldnar Ásvöllum Hafnarfirði aðra og þriðju vikuna í ágúst. Búðirnar verða sem fyrr undir styrkri stjórn Ágústs Björgvinssonar, en hann býr yfir mikilli reynslu af æfingabúðum t.d. frá Duke University og Five Star Basketball Camp í Bandaríkjunum. Ágúst er nýkominn frá Litháen þar sem hann var aðstoðaþjálfari hjá þarlendu atvinnumannaliði. Hjá þessu liði, Lietuvos Rytas, starfa mjög virtir þjálfarar sem búa yfir margra ára reynslu af evrópskum körfuknattleik. Á undanförum árum hafa nokkur hundruð leikmenn, bæði stelpur og strákar, sótt búðirnar og líkað vel. Ef þú ert áhugasamur körfuknattleiksmaður/kona máttu ekki missa af þessu einstaka tækifæri því að það er ekki á hverjum degi sem boðið er upp á körfuboltabúðir sem þessar. Margir af bestu og virtustu þjálfurum landsins hafa þjálfað og haldið fyrirlestra í búðunum og verður engin undantekning þar á í ár. Verður auglýst betur síðar. Þetta er mjög gott tækifæri fyrir þig til þess að þroska hæfileika þína á sviði einstaklingsæfinga í lok sumars er kjörið tækifæri að skerpa á sögunni og stefna að því að verða betri í körfubolta og koma tilbúin fyirr næsta tímabil. Mánudagin 9 til föstudagsins 13 ágúst 9.00 til 12.00 Strákar 12 til 18 ára 4.900kr 13.00 til 16.00 6 til 11 ára stelpur og strákar 3.900kr Mánudagin 16 til föstudagsins 20 ágúst 9.00 til 12.00 stelpur 12 til 18 ára 4.900kr 13.00 til 16.00 6 til 11 ára stelpur og strákar 3.900kr Skráning fer fram á fyrsta degi námskeiðsins og með [p+]coachgusti@hotmail.com[p-]tölvupósti[slod-] Veittur er 10% systkinaafsláttur Frekari upplýsingar eru veittar hjá Ágústi í sima 696-9387 eða í gegnum [p+]coachgusti@hotmail.com[p-]tölvupóstfangið[slod-].