20 júl. 2004Kvennalandslið Skota og Lúxemborgara léku 3 æfingaleiki um helgina og voru þeir leikir liður í undirbúningi beggja liða fyrir Smáþjóðaleikana sem hefjast í næstu viku. Allir leikirnir voru hnífjafnir og sigruðu Lúxemborgar alla leikina, þann fyrsta með 1 stigi, annan með 4 og síðasta með 6 eftir framlengingu. Það er því ljóst að um hörkuleiki verður að ræða hjá íslenska liðinu sem undirbýr sig af kappi fyrir mótið. Þegar heimasíðan ræddi við Ívar Ásgrímsson í morgun sagði hann að það liti út fyrir að Íslendingar fengju sterka andstæðinga strax í fyrsta leik. Smá meiðsli eru í hópnum en þær Marín R. Karlsdóttir og Erla Þorsteinsdóttir verða þó að öllum líkindum orðnar góðar þegar í mótið kemur.