14 júl. 2004Þýska þjálfaraakademían stendur fyrir þjálfaranámskeiði í Köln dagana 1. til 3. ágúst næstkomandi. Fyrirlesarar á námskeiðinu verða þeir Ron Adams frá Chicago Bulls, Dirk Bauermann aðalþjálfari þýska landsliðsins og Carlo Recalcati aðalþjálfari ítalska landsliðsins. Námskeiðið er haldið samhliða 3 liða mót þar sem keppa Þjóðverjar, Ítalir og Draumalið Bandaríkjamanna, en öll þessi lið eru að undirbúa sig fyrir Ólympíuleikana. Þátttökugjald er 300 evrur og eru miðar á leik Þjóðverja og Ítala og Ítala og Bandaríkjamanna. Fæði og gisting eru ekki innifalin í verðinu. Námskeiðið hefst 1. ágúst kl 11 að þýskum tíma og lýkur þann 3. með leik Ítala og Bandaríkjamanna sem hefst kl 20. Allar upplýsingar veitir Peter Radegast í síma 02331 106172 eða með [p+]peter.radegast@basketball-bund.de[p-]tölvupósti.[slod-]