13 júl. 2004Þessa dagana standa yfir sumarmót NBA liðanna, og Dallas Mavericks, lið Jóns Arnórs Stefánssonar, tekur þátt í tveimur þeirra. Dallas er nú að spila í fyrra mótinu, Summer Pro League, og hafa unnið báða sína leiki til þessa. Fyrri leikurinn var gegn Sacramento Kings, en sá leikur vannst 91-80, og Jón Arnór lék í 25 mínútur og skoraði 8 stig. Seinni leikurinn var gegn Los Angeles Clippers og endaði með sjö stiga sigri Dallas, 91-84. Jón Arnór lék í 36 mínútur, skoraði 20 stig og tók átta fráköst. Umræðan á spjallþráðunum hefur ekki verið eins mikil um þessa leiki og um leiki Mavericks gegn kínverska landsliðinu, en þó eru einhverjir molar sem sjást. Á einum þræðinum mátti sjá eftirfarandi í kjölfar leiksins gegn Clippers: "Jón Stefánsson er mjög fjölhæfur. Hann spilar frábæra vörn, hefur gott vald á boltanum, er sæmileg skytta og getur sent boltann. Hann virtist geta komið inn á völlinn og gert það sem liðið þarfnaðist í það og það skiptið. Mjög góður á mörgum sviðum, ekki frábær í neinu nema að vera góður liðsmaður. Við eigum að halda þessum. Keyrði oft að körfunni og kláraði með vinstri hendi, maður sá svolítinn Nash í honum þar. Að öðru leyti má segja að hann er tífaldur varnarmaður á við Nash, en hvergi nærri því að vera jafn góð skytta eða að skapa fyrir liðið." Næsti leikur Dallas er í kvöld, en þá leika þeir gegn New York Knicks.