8 júl. 2004Henning Henningsson þjálfari stúlknalandsliðsins hefur valið 12 manna liðið fyrir Evrópukeppnina í Rakvere í Eistlandi. Liðið mun leika átta leiki í ferðinni. Mótherjar Íslands í kepninni sem er B-deild Evrópukeppninnar eru Holland, Eistland, Litháen, Finnland, Lettland, Írland, England og Svíþjóð. Fyrsti leikur liðsins er gegn Hollandi 30. júlí og sá síðasti 8. ágúst gegn Svíþjóð. Íslenska liðið er sem kunnugt er Norðurlandameistari eftir sigur á Svíþjóð í úrslitaleik, en mótið fór fram í maí sl. Ísland vann 1 stigs sigur á Svíþjóð í úrslitaleiknum, en hafði áður tapað með 10 stigum í riðlinum. Ísland sigraði Finnland með 11 stiga mun. Tólf manna lið Hennings og aðstoðarþjálfara hans, Jóns Halldórs Eðvaldssonar er skipað eftirtöldum leikmönnum: Helena Sverrisdóttir, Haukar Bára Bragadóttir, Keflavík Sara Dögg Ólafsdóttir, Haukar Guðrún Harpa Guðmundsdóttir, Keflavík Ingibjörg Skúladóttir, UMFH Ingibjörg Vilbergsdóttir, UMFN Bára Fanney Hálfdanardóttir, Haukar Hrönn Þorgrímsdóttir, Keflavík Ragnheiður Theodórsdóttir, Keflavík Helga Einarsdóttir, Tindastóll Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík María Ben Erlingsdóttir, Keflavík