30 jún. 2004Hannes Birgir Hjálmarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri KKÍ frá og með 1. júlí 2004. Samkomulag hefur orðið með stjórn KKÍ og Snorra Sturlusyni um starfslok ráðningarsamnings, en Snorri hverfur til starfa í eigin fyrirtæki. Eru Snorra þökkuð störf í þágu sambandsins. Hannes Birgir Hjálmarsson er ýmsum körfuknattleiksáhugamönnum að góðu kunnur fyrir störf í þágu hreyfingarinnar, einkum á vettvangi síns félags - Vals - þar sem hann hefur m.a. gegnt stöðu formanns körfuknattleiksdeildar um fimm ára skeið 1997-2002. Hannes var markaðsfulltrúi hjá Rauða krossi Íslands áður en hann tók við stöðu framkvæmdastjóra KKÍ. Stjórn KKÍ býður Hannes velkominn til starfa.