29 jún. 2004Borgarleikar unglinga (International Childrens Games) verða haldnir í Cleveland í Bandaríkjunum um mánaðarmótin júlí ágúst næstkomandi. Körfuknattleiksráð Reykjavíkur hefur valið þá leikmenn sem munu taka þátt á leikunum og koma þeir úr fjórum félögum í Reykjavík, tveir frá hverju félagi. Þjálfari liðsins verður Ingi Þór Steinþórsson. Eftirtaldir drengir hafa verið valdir til að leika fyrir hönd Reykjavíkur á Borgarleikunum: ÍR: Þorvaldur Hauksson og Anton Örn Helgason Valur: Arnór Sigurgeir Þrastarson og Páll Fannar Helgason Fjölnir: Jens Gísli Heiðarsson og Sindri Már Kárason KR: Pétur Þór Jakobsson og Snorri Páll Sigurðsson. Fyrstu Borgarleikarnir voru í Celje í Slóveníu árið 1968. Leikarnir hafa verið viðurkenndir af Alþjóða Ólympíusambandinu frá 1990. Reykjavík var fyrst með í Ungverjalandi 2001. Þáttakendurnir eru sendir á vegum ÍBR og Reykjavíkurborgar og alls eru fulltrúar frá 143 borgum frá 57 löndum sem taka þátt í ár. Næstu leikar verða í Coventry á Englandi 1.-4. Júlí 2005.