1 jún. 2004Hinar árlegu æfingabúðir KKÍ og Baden (áður And1) byrja í dag þriðjudaginn 1. júni. Búðirnar fara fram í KR-heimilinu, DHL-höllinni, til föstudagsins 4.júni frá 17.00 til 20.30 alla dagana. Ef þú ert áhugasamur körfuknattleiksmaður/kona máttu ekki missa af þessu einstaka tækifæri því að það er ekki á hverjum degi sem boðið er upp á körfuboltabúðir sem þessar. Á undanförum árum hafa nokkur hundruð leikmenn, bæði stelpur og strákar, sótt búðirnar og líkað vel. Æfingabúðirnar eru fyrir stelpur og stráka á aldrinum 12 til 18 ára (hópnum er skipt upp eftir aldri og getu). Skráning fer fram á fyrsta degi námskeiðsins, 1.júní, í DHL-Höllinni kl. 16.30 Verð 4900.- kr. Veittur er 10% systkinaafsláttur Frekari upplýsingar eru veittar hjá Ágústi í sima 696-9387 eða í gegnum tölvupóstfangið coachgusti@hotmail.com.