29 maí 2004Íslenska kvennalandsliðið vann England í kvöld í Grindavík, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00002015/20150102.htm[v-]85-76[slod-], eftir að haft yfir 39-28 í hálfleik. Enska liðið vann fyrsta leikinn með 24 stigum í Keflavík á föstudaginn en íslensku stelpurnar sýndu allt annan leik í Grindavík þar sem þær náðu mest 22 stiga forustu í þriðja leikhluta. Íslenska liðið spilaði vissulega betri vörn en í fyrsta leiknum en mestur munurinn var þó á sókninni sem gekk mjög vel en fimm leikmenn liðsins skoruðu á annan tug stiga í leiknum og sú sjötta, Hildur Sigurðardóttir, var með 9 stig og 6 stoðsendingar. Enska liðið hefur skorað 16 þriggja stiga körfur í leikjunum tveimur (42,1% nýting) og þær komu til baka í síðasta leikhlutanum en munurinn fór þó aldrei niður fyrir níu stig. Liðin spila því hálfgerðan úrslitaleik á Ásvöllum á morgun þar sem hvor um sig hefur unnið einn leik. Birna Valgarðsdóttir setti nýtt landsleikjamet í leiknum þegar hún spilaði sinn 46. landsleik í röð en Birna bætti met Guðbjargar Norðfjörð frá árinu 2000. Birna hefur ekki misst úr landsleik frá því í desember 1995. Birna átti góðan leik í dag, skoraði 13 stig og tók 5 fráköst. Atkvæðamestar hjá Íslandi í öðrum leiknum: Signý Hermannsdóttir 16 stig, 9 fráköst, 5 varin skot Alda Leif Jónsdóttir 15 stig, 10 fráköst, 4 stoðsendingar Erla Reynisdóttir 15 stig, 12/8 í vítum, 5 fráköst Birna Valgarðsdóttir 13 stig, 5 fráköst (4 í sókn) Erla Þorsteinsdóttir 11 stig, 7 fráköst, 6 varin skot Hildur Sigurðardóttir 9 stig, 6 stoðsendingar, 5 fráköst Sólveig Gunnlaugsdóttir 4 stig, 5 fráköst, 4 stoðsendingar Lovísa Guðmundsdóttir 2 stig Þriðji leikurinn fer fram á Ásvöllum á morgun og hefst hann klukkan 11.00. Vináttulandsleikir Íslands og Englands í maí 2004: 28. maí Keflavík Ísland [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00002015/20150101.htm[v-]77-101[slod-] England 29. maí Grindavík Ísland [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00002015/20150102.htm[v-]85-76[slod-] England 30. maí Ásvellir 11.00 Ísland-England Tölfræði Íslands í leikjunum má finna [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00002015/ISLAND__.htm [v-]hér[slod-]. Tölfræði Englands í leikjunum má finna [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00002015/ENG_____.htm [v-]hér[slod-]. Mynd: Signý Hermannsdóttir skoraði 16 stig í sigrinum á Englandi í dag og hefur skorað 16,0 stig, tekið 10,5 fráköst og varið 3,5 skot að meðaltali í leikjunum tveimur.