28 maí 2004Ísland og England mættust í landsleik kvenna í Keflavík í kvöld. Þær ensku reyndust sterkari og unnu öruggan sigur [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00002015/20150101.htm[v-]77-101[slod-]. Íslensku stelpurnar voru skrefinu á eftir þeim ensku allan leikinn, en tókst þó að höggva nærri forskoti gestanna í þriðja leikhluta. Þrátt fyrir ágætar upphafsmínútur tóks íslenska liðinu ekki að fylgja þeim eftir og þær ensku tóku öll völd á vellinum. Kom þar einkum til slök vörn íslenska liðsins og slæm hittni. Eftir fyrsta leikhluta var staðan 17-25 og 34-49 í hálfleik. Slæmur kafli íslenska liðsins í upphafi þriðja leikhluta færði þeim ensku 20 stiga forskot, en okkar stúlkum tókst að minnka muninn í 8 stig í lok þriðja leikhluta, 60-68. Í lokafjórðungnum tóku gestirnir aftur kipp og lönduðu öruggum sigri. Þær Erla Þorsteinsdóttir og Hildur Sigurðardóttir voru stigahæstar í íslenska liðinu með 22 stig hvor, en Signý Hermannsdóttir kom þeim næst með 16 stig. Öll tölfræði leiksins er í leikvarpinu. mt: Erla Þorsteinsdóttir skorar tvö stig fyrir Ísland í leiknum í kvöld.