27 maí 2004Kvennalandslið Íslands og Englands mætast í þremur vináttulandsleikjum nú um Hvítasunnuhelgina. Þetta eru fyrstu leikir kvennalandsliðsins frá því Ívar Ásgrímssin tók við stjórn liðsins. Leikirnir eru einnig þeir fyrstu sem enska liðið leikur síðan í desember 2002. Fyrsti leikurinn verður annað kvöld, föstudagskvöld kl. 20:00 í Keflavík, á laugardag verður leikið í Grindavík kl. 17:00 og á sunnudag mætast liðin á Ásvöllum kl. 11:00. Enska liðið heldur af landi brott síðdegis á sunnudag. Íslenska liðið er skipað eftirtöldum leikmönnum: Nafn Félag Leikstaða Alda Leif Jónsdóttir ÍS Bakvörður Birna Valgarðsdóttir Keflavík Framherji Erla Reynisdóttir Keflavík Framherji Erla Þorsteinsdóttir Keflavík Miðherji fl. Hildur Sigurðardóttir KR Bakvörður Lovísa Guðmundsdóttir ÍS Framherji María Ben Erlingsdóttir Keflavík Miðherji Marín R Karlsdóttir Keflavík Bakvörður Ólöf Helga Pálsdóttir Grindavík Framherji Petrúnella Skúladóttir Grindavík Framherji Rannveig K Randversdóttir Keflavík Bakvörður Signý Hermannsdóttir ÍS Miðherji vfl. Sólveig Gunnlaugsdóttir Grindavík Framherji Anna María Sveinsdóttir gaf ekki kost á sér í þetta verkefni vegna anna. Svava Stefánsdóttir meiddist á hné á æfingum og verður frá keppni í u.þ.b. tvær vikur.Helena Sverrisdóttir meiddist á baki á Norðurlandamóti unglinga og þarfnast hvíldar.