17 maí 2004Fjögur unglingalandslið pilta og stúlkna halda til Stokkhólms í fyrramálið, þriðjudagsmorgn, til þátttöku í Norðurlandamóti unglinga. Um er að ræða lið skipuð leikmönnum fæddum 1985-87 í U-18 ára liðunum og leikmönnum fæddum 1988-89 í U-16 liðinu. Alls eru rúmlega 60 manns í hópnum sem fer út. Um er að ræða 48 leikmenn, en nöfn þeirra hafa þegar verið birt hér. Fararstjórar í ferðinni eru Hannes S. Jónsson, Björn Leósson, Snorri Örn Arnaldsson og Þóra Melsted. Þá eru fjórir dómarar með í ferð, þeir: Sigmundur Már Herbertsson, Erlingur Snær Erlingsson, Björgvin Rúnarsson og Eggert Þór Aðalsteinsson. Þjálfarar liðanna eru Einar Árni Jóhannsson U-18 ka., Benedikt Guðmundsson U-16 ka. Hlynur Skúli Aðunsson U-18 kv. og Henning Henningsson og Jón Halldór Eðvaldsson U-16 kv. Fyrstu leikir liðanna í mótinu verða gegn Svíum á miðvikudag, en mótinu líkur á sunnudag.