8 maí 2004Danir hafa gefið út, líkt og Norðmenn, hvaða lið muni leika í [v+]http://www.basketligaen.dk[v-]Basketligaen[slod-] á næsta ári. Í Danmörku þarf að uppfylla ákveðin skilyrði til að fá að taka þátt og að þessu sinni voru 10 lið sem hlutu náð fyrir stjórn deildarinnar. 11 lið hófu leik í deildinni í haust en BF Copenhagen varð gjaldþrota í október og eftir það léku 10 lið í deildinni. Það verður því sami fjöldi næsta vetur. Eitt nýtt nafn kemur inn en það er lið BK Amager en lið Skjold/Stevensgade var hafnað. BK Amager sigraði í 1. deild og hlaut þar með rétt til að sækja um þátttöku í Basketligaen. Skjold/Stevensgade varð hins vegar næst neðst í Basketligaen en rekstur félagsins hefur verið erfiður undanfarið og er það talið ástæðan fyrir að þeirra umsókn var hafnað. Í deildinni verða á næsta ári Bakken Bears (Skovbakken), Horsens IC, Randers, Åbyhøj, Ålborg, Svendborg, SISU, Team Sjælland, Hørsholm og BK Amager. Ísak Einarsson lék með Ålborg í vetur en KKÍ veit ekki að svo stöddu hvort hann leikur þar næsta vetur. Þá hefur stjórn Dameligaen gefið út hvaða lið muni leik í kvennadeildinni næsta ár, en það eru sömu átta liðin og léku síðasta ár, Hørsholm, Virum, SISU, Skjold/Stevensgade, Glostrup, Falcon, BK Amager og Vitus Bering Pirats