7 maí 2004Hin árlega Firmakeppni kkd. Hauka verður haldin dagana 24.-26. maí. Keppnin verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Leikið verður í fjórum riðlum, fjögur lið í riðli. Eitt lið úr hverjum riðli kemst svo í undanúrslit og sigurvegarar undanúrslita leika til úrslita um sæmdarheitið Firmameistarar kkd. Hauka 2004. Umsjónarmenn auglýsa þetta skipulag með fyrirvara um breytingu (fer eftir þátttöku hvort eitt lið eða fleiri komast upp úr riðlunum). Umsjón með mótinu hafa þeir Stefán Þór Borgþórsson s. 695 8631 og Emil Örn Sigurðsson s. 867 1418. Hægt er að skrá sig í gegnum tölvupóst og berist hún firmamothauka@hotmail.com Þáttökugjald er krónur 15.000 og greiðist fyrir fyrsta leik. Hægt er að skrá þáttöku hjá umsjónarmönnum.