5 maí 2004Dómaranefnd KKÍ hefur valið fjóra dómara til að dæma á Norðurlandamótið sem fer fram í Solna í Svíþjóð dagana 19.-23. maí. Það verða þeir Sigmundur Már Herbertsson, Björgvin Rúnarsson, Eggert Þór Aðalsteinsson og Erlingur Snær Erlingsson. Alls eru 61 í hópnum sem fer frá KKÍ á mótið, 48 leikmenn, 4 fararstjórar, 5 þjálfarar og 4 dómarar.