1 maí 2004Ársþing KKÍ 2004 var sett kl. 10:05 í morgun. Í kjölfar þingsetningar veitti Ólafur Rafnsson, formaður KKÍ, tveimur einstaklingum heiðursmerki KKÍ. Gylfi Þorkelsson, Selfossi, fékk silfurmerki KKÍ, og þeir Pétur Hrafn Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri KKÍ, og Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, fengu afhent gullmerki KKÍ. Veitingu heiðursmerkja var ekki lokið, því Ellert B. Schram hélt stutta ræðu og afhenti að henni lokinni Pétri Hrafni gullmerki ÍSÍ.