30 apr. 2004KKRR hefur valið þá leikmenn sem munu þátt í Borgarleikunum í Cleveland í sumar. Drengirnir koma frá fjórum félögum í Reykjavík, tveir frá hverju félagi. Borgarleikar unglinga (International Childrens games) hafa verið haldnir um víða veröld í 35 ár. Leikarnir eru keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum fyrir ungmenni á aldrinum 12-15 ára. Samtökin sem standa að þessum leikum eru viðurkennd af Alþjóða Ólympíunefndinni frá 1990. [v+]http://www.ibr.is[v-]ÍBR[slod-] hefur með stuðningi frá [v+]http://www.itr.is/wppitr.nsf/pages/index.html[v-]ÍTR[slod-] sent þátttakendur á Borgarleika frá árinu 2001. Stjórn ÍBR hefur ákveðið að senda þátttakendur í eftirfarandi íþróttagreinum á Borgarleikana 2004: Knattspyrnu (8 stelpur) Körfuknattleik (8 strákar) Frjálsum íþróttum (4 stelpur og 4 strákar) Í ár verða Borgarleikarnir haldnir í Cleveland í Ohio fylki í Bandaríkjunum. Ráðgert er að halda til USA 28. júlí og koma heim 4. ágúst. [v+]http://www.childrens-games.org/index2.html[v-]Vefur mótsins[slod-]. Sérráðin í ofangreindum íþróttagreinum eru að velja lið og þjálfara þessa dagana. KKRR hefur valið körfuknattleiksliðið og er það skipað eftirfarandi leikmönnum, sem fæddir eru 1989: Sindri Már Kárason, Fjölni Jens Gísli Heiðarsson, Fjölni Páll Fannar Helgason, Valur Arnór Ingvarsson, Valur Pétur Þór Jakobsson, KR Snorri Páll Sigurðsson, KR Þorvaldur Hauksson, ÍR Anton Örn Helgason, ÍR Þjálfari með í för verður Ingi Þór Steinþórsson.