29 apr. 2004Á síðasta ársþingi KKÍ í Stykkishólmi voru samþykktar breytingar á lögum KKÍ með breytingum á 3. mgr. 9. gr. laga sambandsins er fólu það í sér að framboðsfrestur var tekinn upp til trúnaðarstarfa innan stjórnar KKÍ. Reyndar hafa fleiri einingar íþróttahreyfingarinnar farið sömu leið, nú síðast ÍSÍ á Íþróttaþingi um s.l. helgi. Fyrir komandi þingi KKÍ, sem haldið verður á Selfossi um helgina, liggur fyrir listi um framboð, og er á grundvelli laganna sjálfkjörið í þær stöður innan stjórnar KKÍ. Aðalmenn í stjórn eru kjörnir til tveggja ára í senn, og er helmingur aðalmanna í kjöri hverju sinni. Varamenn í stjórn eru kjörnir til eins árs í senn. Með hliðsjón af framangreindu mun stjórn KKÍ á næsta starfsári líta þannig út: Formaður: Ólafur Rafnsson Meðstjórnandi: Hannes S. Jónsson (er á síðara ári) Meðstjórnandi: Gísli Páll Pálsson (er á síðara ári) Meðstjórnandi: Jón Halldórsson (er á síðara ári) Meðstjórnandi: Gísli Georgsson Meðstjórnandi: Bjarni Gaukur Þórmundsson Meðstjórnandi: Eyjólfur Guðlaugsson Varamaður: Hrannar Hólm Varamaður: Svali Björgvinsson Varamaður: Guðbjörg Norðfjörð Stjórn KKÍ mt: Ólafur Rafnsson býður sig fram til áframhaldandi setu á formannsstóli KKÍ næstu tvö árin.