23 apr. 2004Vera kann að einhver telji sig þekkja til sambærilegrar fyrirsagnar í eldri pistlum undirritaðs - og er það mér vissulega gleðiefni ef einhverjir eru í sjálfu sér svo vel að sér í efnistökum pistlanna. Án efa er það draumsýn og óskhyggja að svo sé - og ætla ég mér ekki að setja skrif þessi á þann stall að þau séu nægilega merkileg til að breyta verulega framgangi þess sem fyrirsögnin vísar til. Hinsvegar er tilefni þessa pistils nú tvíþættur. Annarsvegar er hann ritaður í tilefni þess að á morgun verður haldið Íþróttaþing 2004, og er ávallt hollt í tengslum við slíka viðburði að velta fyrir sér hlutverki íþrótta í samfélagi þegnanna. Í öðru lagi þá hefur orðið ýmis framþróun í þessum málaflokki síðan undirritaður hóf pistlaskrif um þau á undanförnum misserum, en í kjölfar þeirra er það mat undirritaðs að nú séu meiri sóknarfæri hérlendis á sviði samfélagslegs hlutverks íþrótta, þ.m.t. körfuknattleiks, en oft áður. [v+]http://www.kki.is/greinar.asp?Adgerd=ein_grein&Recid=217[v-]Allur pistillinn[slod-].