19 apr. 2004Jón Eysteinsson formaður aganefndar KKÍ hefur ákveðið að hætta í nefndinni, en hann hefur verið formaður nefndarinnar frá stofnun hennar árið 1972. Á lokahófi KKÍ sl. föstudag fékk Jón afhent verðlaun fyrir frábært framlag til körfuknattleiksins. Auk þess að hafa veitt þessari oft umdeildu nefnd forystu í 32 ár var Jón leikmaður með fyrsta landsliði Íslands og dómari til margra ára. Það var Einar Bollason veislustjóri í lokahófinu sem afhenti Jóni viðurkenninguna og var það vel við hæfi því hann var einn aðalhvatamaður þess að nefndin yrði stofnuð og sá henni fyrir verkefnum fyrstu árin.