20 feb. 2004Icelandair stendur fyrir ferð á til Minnesota 4. - 8. mars næstkomandi þar sem körfuknattleiksáhugamönnum gefst m.a. tækifæri til að sjá leik í NBA - deildinni. Fararstjóri verður enginn annar en Pétur Guðmundsson fyrrum leikmaður í NBA deildinni. Farið verður á leik Minnesota Timberwolves og Houston Rockets á föstudeginum. Minnesota er með hörkulið og á toppnum í sínum riðli og í liði Houston er All Star miðherjinn frá Kína Yao Ming. Á laugardeginum gefst svo tækifæri til að sjá leik í háskólaboltanum á milli University of Minnesota og Penn State University, en þeir sem til þekkja segja stemminguna í háskólaboltanum engu líka. Icelandair hefur tryggt góða miða á báða viðburðina. Verðinu er stillt í hóf eða aðeins kr. 54.950 á mann í tvíbýli og er innifalið flug, gisting í 4 nætur, rútuferðir, miði á leikina og fararstjórn Péturs Guðmundssonar sem er öllum hnútum kunnugur.