19 feb. 2004Aganefnd KKÍ hefur dæmt David Sanders leikmann Tindastóls í Intersport-deildinni í tveggja leikja. Sanders fékk á sig tvær kærur eftir leik Þórs Þ. og Tindastóls sl. föstudag. Þjálfari Tindastóls, Kristinn Friðriksson, sem vísað var af leikvelli í sama leik, eftir að varamenn hans fengu dæmdar á sig þrjár tæknivillur, var dæmdur í eins leiks bann. Þeir Kristinn og Sanders geta leikið með Tindastól gegn Hamri í kvöld, þar sem bannið tekur ekki gildi fyrr en á hádegi á morgun, föstudag. Þeir félagar verða báðir í banni gegn ÍR 26. febrúar og Sanders tekur einnig út bann í leiknum gegn Breiðabliki 29. febrúar. Aganefnd dæmdi þá Sigmar Egilsson Skallagrím og Pál Sigurðsson Ármanni/Þrótti b í eins leiks bann vegna brottvísana sem þeir hlutu í leikjum liða sinna nýlega.