19 feb. 2004Golfmót körfuboltamanna í ár (það sjöunda) verður haldið föstudaginn 11.júní hjá golfklúbbnum Leyni á Akranesi. Menn eru vinsamlega beðnir að taka daginn frá og eins að koma þessum upplýsingum til allra þeirra körfuboltamanna sem eitthvað eru að fikta við golfið. Mót þetta er ætlað körfuboltamönnum (fyrrverandi og núverandi), dómurum, stjórnarmönnum og öllum þeim sem hafa starfað í krignum körfuboltann. Mótið verður auglýst nánar þegar nær dregur. Nánari upplýsingar er að fá hjá undirrituðum. Með bestu kveðju úr Stykkishólmi, Ríkharður Hrafnkelsson gsm: 897-6279 netfang: rikhardur@sfs.is 548