12 feb. 2004Hin heyrnarlausa, Marsha Wetzel, hefur verið skipuð sem dómari í 1. deild kvennakörfuboltans í bandarísku háskólakeppninni (NCAA Div. 1). Hún er fyrsta heyrnarlausa konan sem velst til þess starfa. Hún hefur einnig verið valin til að dæma í Patriot-deildinni fyrir konur, sem og Atlantic 10 háskóladeildinni. Marsha Wetsel er hámenntuð á sviði íþrótta og kennslu heyrnarlausra. Hún var leikmaður á árum áður og lék meðal annars með bandaríska landsliðinu á Ólympíuleikum heyrnarlausra árið 1985 og 1989. Hún var einnig þjálfari og var meðal annars valinn þjálfari ársins þegar hún þjálfaði lið heyrnarlausra stúlkna frá Washington DC. Að sögn kunnugra á Marsha ekki í neinum vandræðum með samskipti við þjálfara í leikjum. Hún hefur yfirleitt táknmálstúlk með sér í leiki, en sé hann ekki til staðar er notast við skrifblokk við samskiptin. Auk þess að dæma leiki í 1. deild háskólaboltans og í Patriot-deildinni, þá dæmir Marsha í 3. deild háskólakeppninnar og í leikjum menntaskólaliða. Marsha starfar, auk þess að dæma, hjá stofnun sem sér um menntunar og íþróttamál heyrnarlausra og heyrnarskertra nemanda.