7 feb. 2004Keflavík varð í kvöld fyrsta félagið í heilan áratug til að verða bikarmeistari tvö ár í röð í karlaflokki þegar Keflavíkurliðið vann 19 stiga sigur á nágrönnum sínum í Njarðvík, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001810/18100501.htm[v-]93-74[slod-], í bikarúrslitaleik KKÍ og Lýsingar í Laugardalshöll í dag. Keflavík hafði frumkvæðið allan tímann, leiddi með sjö stigum í hálfleik, 47-40, og með 14 stigum eftir þriðja leikhluta, 74-60. Þetta er í fimmta sinn sem Keflavík vinnur bikarinn og allir bikartitlarnir hafa komið í hús á síðustu ellefu árum. Derrick Allen og Arnar Freyr Jónsson áttu báðir stórleik í liði Keflavíkur, Allen var með 29 stig og 20 fráköst og Arnar Freyr var með 20 stig, 9 stoðsendingar og 5 stolna bolta. Arnar Freyr kom mörgum á óvart með veru sinni í byrjunarliði Keflavíkur en þar veðjuðu þjálfararnir Guðjón Skúlason og Falur Harðarson greinilega á réttan hest. Arnar skoraði 9 stig í fyrsta leikhlutanum og gerði Njarðvíkingum lífið leitt allan leikinn enda óhemju snöggur og fljótur að snúa vörn í sókn. Nick Bradford skilaði líka sínu og var með 22 stig, 6 fráköst og 4 stolna bolta og fyrirliðinn Gunnar Einarsson, var með 8 stig, 7 fráköst og 4 stolna bolta en Keflavík stal alls 19 boltum af nágrönnum sínum í þessum leik. Brenton Birmingham skoraði mest fyrir Njarðvík með 24 stig auk þess að taka 8 fráköst og gefa 4 stoðsendingar og Friðrik Stefánsson var með 18 stig, 18 fráköst, 4 stoðsendingar og 7 varin skot. Nýi maðurinn hjá Njarðvík, Larry Bratcher skoraði átta fyrstu stig liðsins en síðan ekki söguna meira og klikkaði hann á 9 síðustu skotum sínum í leiknum. Þeir Halldór Rúnar Karlsson og Ragnar Ragnarsson skoruðu einnig 8 stig fyrir Njarðvíkurliðið sem tapaði 25 boltum í leiknum þar af voru þeir Brenton (9), Bratcher (6) og Brandon Woudstra (4) með 19 saman. Brandon lék augljóslega sárþjáður og náði sér ekki á strik, klikkaði á 5 af 6 skotum og skoraði aðeins 2 stig á 31 mínútu. Keflavík varð eins og áður sagði fyrsta félagið í áratug til að verja bikarmeistaratitil sinn í karlaflokki eða síðan þeir sjálfir unnu bikarinn 1993 og 1994. Keflavík vann ennfremur tvöfalt í Höllinni í fjórða sinn því fyrr í dag unnu Keflavíkurstúlkur 72-69 sigur á KR í bikarúrslitaleik kvenna. Keflavík vann einnig tvöfaldan bikarsigur 1993, 1994 og 1997 en KR (1977) og ÍS (1978) eru einu félögin sem hafa afrekað slíkt. Flestir bikarmeistaratitlar karla 1970-2004: 9 KR (1970, 71, 72, 73, 74, 77, 79, 84, 91) 7 Njarðvík (1987, 88, 89, 90, 92, 99, 2002) 5 Keflavík (1993, 94, 97, 2003, 04) 3 Valur (1980, 81, 83) 3 Haukar (1985, 86, 96) 3 Grindavík (1995, 98, 2000) 2 Ármann (1975, 76) 1 ÍS (1978) 1 Fram (1982) 1 ÍR (2001) Bikarmeistaratitlar Keflavíkur: 1993: Keflavík 115-76 Snæfell 1994: Keflavík 100-97 Njarðvík 1997: Keflavík 77-66 KR 2003: Keflavík 95-71 Snæfell 2004: Keflavík 93-74 Njarðvík Tvöfaldir bikarmeistarar 1970-2004: 1977: KR 1978: ÍS 1993: Keflavík 1994: Keflavík 1997: Keflavík 2004: Keflavík