7 feb. 2004Keflavíkurkonur urðu í dag bikarmeistarar í 11. sinn eftir æsispennandi og skemmtilegan bikarúrslitaleik við KR í Laugardalshöllinni. Keflavík vann leikinn [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001811/18110401.htm[v-]72-69[slod-] eftir að hafa verið 11 stigum undir þegar aðeins fjórar mínútur voru eftir. KR hafði yfir 31-27 í hálfleik og leiddi með 2 stigum eftir þriðja leikhluta, 52-50. Erla Þosteinsdóttir og Svava Ósk Stefánsdóttir skoruðu báðar 15 stig fyrir Keflavík og Svava var með 6 stoðsendingar að auki en hún kom með frábæra innkomu af bekknum og skoraði meðal annars þrjá þrista í leiknum. Anna María Sveinsdóttir bætti síðan við 14 stigum og 15 fráköstum en hún hefur verið bikarmeistari með Keflavík í öll ellefu skiptin sem liðið hefur unnið bikarinn. Birna Valgarðsdóttir var með 9 stig og 5 stolna bolta sem og Erla Reynisdóttir sem skoraði meðal annars rosalega mikilvægan þrist sem minnkaði muninn niður í 3 stig, 66-69, þegar rúm mínúta var eftir. Rannveig Radnversdóttir bætti síðan við 6 stigum. Erlurnar í Keflavíkurliðinu skoruðu 15 síðustu stig Keflavíkurliðsins í leiknum og lönduðu sigrinum en allt KR-liðið skoraði á sama tíma 4 stig. Erla Þorsteinsdóttir skoraði 8 stig á þessum síðustu fjórum mínútum en nafna hennar Reynisdóttir var með 7 stig. Erla Reynisdóttir hefur verið í sigurliði í öllum fimm bikarúrslitaleikjunum sem hún hefur tekið þátt í. Katie Wolfe átti frábæran leik fyrir KR en ekkert af stigunum hennar 30 komu á síðustu þremur mínútum leiksins sem Keflavík vann 13-2. Erla Þrosteinsdóttir, fyrirliði Keflavík, fór mikinn á þessum umræddu þremur mínútum og skoraði þá 8 af 15 stigum sínum en Erla lék aðeins í 20 mínútum í leiknum vegna villuvandræða. Hjá KR skoraði Katie Wolfe 30 stig og Hildur Sigurðardóttir var með 19 stig og 10 fráköst.Katie nýtti 12 af 17 skotum sínum og stal að auki 5 boltum af Keflavíkurliðinu. Tinna Björk Sigmundsdóttir spilaði einnig vel og var með 7 stig og 6 stoðsendingar og þær Lilja Oddsdóttir og Guðrún Arna Sigurðardóttir skoruðu báðar 6 stig. Flestir bikarmeistaratitlar kvenna 1975-2004: 11 Keflavík (1988, 89, 90, 93, 94, 95, 96, 97, 98, 2000, 04) 9 KR (1976, 77, 82, 83, 86, 87, 99, 2001, 02) 6 ÍS (1978, 80, 81, 85, 91, 2003) 2 Haukar (1984, 92) 1 Þór Akureyri (1975) 1 ÍR (1979) Bikarsigrar kvennaliðs Keflavíkur: 1988: Keflavík 76-60 Haukar 1989: Keflavík 78-69 ÍR 1990: Keflavík 62-29 Haukar 1993: Keflavík 58-54 KR 1994: Keflavík 56-53 Grindavík 1995: Keflavík 61-42 KR 1996: Keflavík 69-40 Njarðvík 1997: Keflavík 66-63 (59-59) KR 1998: Keflavík 70-54 ÍS 2000: Keflavík 59-48 ÍS 2004: Keflavík 72-69 KR