6 feb. 2004KR og Keflavík eru mestu bikarlið kvennakörfuboltasögunnar. Hvort félag leikur á morgun sinn fimmtánda bikarúrslitaleik. Ekkert félag hefur oftar tekið þátt í þessum mikilvæga leik í Laugardalshöllinni. Í þeim fjórtán leikjum sem að baki eru hefur Keflavík sigrað í tíu leikjum og tapað fjórum sem gerir 71% vinningshlutfall. KR fylgir fast á eftir með níu sigra og fimm töp eða 64% árangur. Þessi tvo félög hafa fimm sinnum áður mæst í bikarúrslitum og Keflavík haft bestur í þrjú skipti en KR í tvö. Keflavík sigrði árin 1993, 1995 og 1997, en KR sigraði 1987 og 2001.