27 jan. 2004Sex körfuknattleiksmenn voru teknir í lyfpróf af lyfjaeftirlitsnefnd ÍSÍ eftir leik UMFN og Tindastóls í Intersport-deildinni 18. desember sl. Niðurstöður prófanna liggja nú fyrir og fundust engin lyf á bannlista í sýnunum. Eftirtaldir leikmenn voru prófaðir: Kristján Sigurðsson UMFN, Brandon Woudstra UMFN, Páll Kristinsson UMFN, Axel Kárason Tindastól, Óli S. Barðdal Tindastól og Clifton Cook Tindastól.