23 jan. 2004Birmingham Southern College sigraði Liberty á heimavelli sínum 67-63 í Big South-deild bandarísku háskólakeppninnar (NCAA Div. I) í gærkvöldi. Það var íslenski landsliðsmaðurinn Jakob Sigurðarson sem tryggði BSC sigurinn með því að hitta úr fjórum vítaskotum á síðustu 34 sekúndum leiksins. BSC hafði 11 stiga forystu í fyrri hálfleik, en þegar flautað var til leikhlés var staðan 37-31. Leikurinn var síðan mjög spennandi í lokin en Jakob, sem er á lista yfir hittnustu leikmenn 1. deildarinnar í Bandaríkjunum, brást ekki bogalistin þegar á reyndi. Jakob skoraði 18 stig í leiknum, var með 4 fráköst og 4 stoðsendingar. Hann hitti afar vel, var með fimm skot ofan í af átta, hitti úr báðum 3ja stiga skotum sínum og öllum sex vítaskotunum. BSC mætir Winthrope á morgun, en sá skóli var fyrir tímabilið talinn líklegur til að gera tilkall til efsta sætis Big South-deildarinnar. Til gamans má geta þess að leikurinn verður sýndur í sjónvarpi um öll suðurríki Bandaríkjanna á sjónvarpsstöðinni Fox Sports Net South.