8 jan. 2004Tony Parker bakvörður NBA-meistara San Antonio Spurs hefur verið valinn íþróttamaður ársins í Frakklandi. Í öðru sæti varð kvennalandsliðið í handknattleik og Eunice Barber varð í þriðja sæti. Þá varð góðvinur Parkers, knattspyrnumaðurinn Thierry Henry hjá Arsenal, ífjórða sæti í kjörinu sem franska íþróttablaðið L Equipe stendur fyrir.