12 des. 2003Talsverður kippur hefur komið í beiðnir um félagaskipti undanfarna daga eins og oft er á þessum árstíma. Eflaust hugsa margir sér að nota tímann yfir jól og áramót, þegar engir leikir eru, í biðtíma eftir leikheimild með nýju félagi, en sem kunnugt er er biðtíminn einn mánuður. Félagaskipti frá því síðasta keppnistímabili lauk, 30. apríl, og til dagsins í dag eru orðin 312 talsins og eflaust mun þeim fjölga eitthvað næstu daga. Frestur til að skipta um félag í meistaraflokki karla og kvenna rennur út 5. janúar nk. Í yngri flokkunum má þó skipta um félag til 28. febrúar. [v+]http://www.kki.is/skjol/felski10des.htm[v-]Listi yfir samþykkt félagaskipti[slod-] til dagsins í dag.