11 des. 2003Keflavík er með fullt hús stiga á heimavelli í vesturdeild bikarkeppni Evrópu. Í gærkvöld lagði Keflavík franska liðið Hyeres-Toulon Var 82-78 og settist á toppinn í B-riðli vesturdeildarinnar. Ovarense sigraði landa sína í Madeira í uppgjöri portúgölsku liðann 70-81 og er í öðru sæti riðilsins með 7 stig eins og Keflvíkingar. Derrick Allen fór á kostum í liði Keflvíkinga og skoraði 30 stig, þarf mikilvæg stig á lokamínútum leiksins. Franska liðið var yfir mest allan leikinn en Keflvíkingar, sem ekki hittu vel úr langskotum að þessu sinni, tryggðu sér sigurinn í lokin með frábærum varnarleik og öryggi og yfirvegun frá vítalínunni. Ekki alveg keflvíska aðferðin, en dugði samt. Keflavík á eftir að leika tvo leiki í riðlinum, við portúgölsku liðin á útivelli. Þeir eru því öruggir með 9 stig úr riðlinum og ljóst að þeir lenda í 1. 2. eða 3. sæti riðilsins. Sigur í öðrum leiknum í Portúgal gæti dugað til sigurs í riðlinum. Nick Bradford gerði 16 stig, Magnús Þór Gunnarsson 11, Gunnar Einarsson 10 og Falur Harðarson 8. Næstu leikir Keflavíkur eru í Portúgal 16. og 18. desember.