24 nóv. 2003Í 40 ára afmælisfagnaði KKDÍ sl. laugardag var Kristinn Albertsson körfuknattleiksdómari sæmdur Gullmerki KKÍ. Kristinn er 36. einstaklingurinn sem hlýtur Gullmerki KKÍ í rúmlega 40 ára sögu sambandsins. Er hann einstaklega vel að þessari viðurkenningu kominn. Kristinn varð dómari aðeins 15 ára gamall árið 1980. Hann sat í stjórn KKÍ í 5 ár frá 1985 - 1990 og var framkvæmdastjóri KKÍ í tvö ár. Hann hefur starfaði í dómaranefnd KKÍ til fjölda ára og var fyrsti formaður hins endurreista félags körfuknattleiksdómara KKDÍ. Vefsíða KKÍ óskar Kristni til hamingju með Gullmerki KKÍ