29 okt. 2003KKÍ mun halda dómaranámskeið í nóvember bæði í Reykjavík og á Akureyri. Bæði er um bóklega og verklega kennslu að ræða. Dómararnir Jón Bender og Einar Einarsson munu kenna á námskeiðunum. Fyrra námskeiðið verður í Reykjavík 8. nóvember kl. 10.00 - 16.00 í Íþróttamiðstöðinni Laugardal og 9. nóvember kl. 09.00 - 16.00. Dæmt verður í fjölliðamóti 7. flokks karla í DHL höllinni og fyrirlestrar. Kennari verður Jón Bender. Verð á námskeiðið er kr. 5.000 pr. einstakling. Seinna námskeiðið verður á Akureyri þann 14. nóvember kl. 19.00 - 23.00 í félagsheimili Þórs að Hamri og 15. nóvember kl. 09.00 - 17.00 á sama stað og dæmdir verða leikir í fjölliðamóti 9. fl. karla í Glerárskóla. Kennari er Einar Einarsson. Verð á námskeiðið er kr. 5.000 pr. einstakling. Athygli félaganna er vakin á því að dómaraskortur er á öllu landinu, sérstaklega á það við um Norðurland og því mikilvægt að félögin kynni þetta námskeið vel og sjái til þess að félagsmenn mæti á námskeiðið og taki dómaraprófið. Án dómara verður enginn bolti!!! Skráning er hjá KKÍ í síma 514-4100 eða með tölvupósti á petur@kki.is