21 okt. 2003Eins og undanfarin ár mun körfuknattleiksdeild Fjölnis, í samvinnu við Hópbíla ehf., standa fyrir stórmóti fyrir yngstu iðkendur körfubolta þ.e.a.s. fyrir drengi fædda 1993 og síðar og stúlkur fæddar 1992 og síðar. Mótið verður haldið í íþróttamiðstöðinni Dalhúsum og í íþróttahúsi Rimaskóla dagana 29. og 30. nóvember n.k. Þátttökugjald er kr. 10.000 á hvert félag og 3.000 kr. á hvern leikmann. Innifalið í þessu verði er gisting í Rimaskóla, ásamt kvöldverði, morgunverði og pizzuveislu. Einnig verður boðið uppá bíóferð, sund og kvöldvöku. Ekki verður keppt um sæti heldur verður leikgleðin látin ráða ríkjum og fá allir keppendur verðlaunapening að móti loknu. Þátttaka tilkynnist til Benedikts Guðmundssonar í síma 897-8311 eða benino@simnet.is fyrir 10. nóvember n.k. Önnur mót fyrir 10 ára og yngri í vetur verða KEA-skyr mót Breiðabliks sem haldið verður 31. janúar - 1. febrúar og Samkaupsmótið í Reykjanesbæ 6.-7. mars.