14 okt. 2003Mikil spenna ríkir ú í körfuknattleiksheiminum vegna körfuboltakeppni Ólympíuleikanna í Aþenu á næsta ári. Búist er við hörkukeppni, þeirri bestu síðan á leikunum í Barcelona 1992. Dregið verður í riðla leikanna þann 8. nóvember nk. í Madríd. Alls verða 12 þjóðir með í körfuknattleikskeppninni í Aþenu, þar af fimm þjóðir frá Evrópu. Þar verða fremstir í flokki nýbakaðir Evrópumeistarar Litháen, auk þess Ítalía, Spánn, Serbía og Svartfjallaland og gestgjafarnir Grikkland. Frá Ameríku: Bandaríkin, Argentína og Puerto Ríkó. Frá Asíu: Kína, Frá Afríku: Angóla og frá Eyjaálfu: Ástralía og Nýja Sjáland. Liðunum verður skipt í tvo sex liða riðla og síðan komast fjögur efstu liðin áfram í fjórungsúrslit. Eftir það verður keppt með útsláttarfyrirkomulagi. Búist er við að Bandaríkin tefli fram mjög sterku liði, skipuðu bestu leikmönnum NBA-deildarinnar.