10 okt. 2003KKÍ og Hópbílar hafa gert samning um að fyrirtækjabikarkeppnin verði kennd við Hópbíla næstu 3 árin. Samningur þessa efnis var undirritaður í dag. Á myndinni eru þeir Gísli Friðjónsson forstjóri Hópbíla og Ólafur Rafnsson formaður KKÍ að handsala samninginn. Undanfarin þrjú ár hefur KKÍ verið í samstarfi við Kjörís um þessa keppni. KKÍ vill koma þakklæti á framfæri við Kjörís fyrir samstarfið. Hópbílabikarinn hefst á sunnudaginn kemur, en þá fara fram átta leikir. Síðari leikirnir í 16-liða úrslitunum fara fram á fimmtudag og föstudag í næstu viku. Hér til hægri má sjá daskrá Hópbílabikarsins, bæði hjá körlum og konum.