24 júl. 2003Alþjóðlegt unglingamót stúlkna á vegum FIBA verður haldið í Hafnarfirði í byrjun næsta mánaðar. Þátttökuþjóðir eru Malta, Gíbraltar, Skotland og Andorra auk Íslands. Þessar þjóðir taka ekki þátt í hinni eiginlegu Evrópukeppni FIBA, en þessi keppni nefnist Promotion cup. Það eru stúlkur fæddar 1985 og síðar sem hafa aldur til þátttöku. Haukar sjá um framkvæmd mótsins og hafa nú opnað sérstakan vef tileikaðan mótinu. Vísað er á vefinn hér til vinstri. Íslenska liðið hefur æft af kappi að undanförnu undir stjórn Ágúst Björgvinssonar og Hlyns Skúla Auðunssonar þjálfara. Eftirtaldar stúlkur eru í hópnum, en endanlegt 12 manna lið verður valið um eftir helgi: Erna Rún Magnúsdóttir, Grindavík Hanna S. Hálfdánardóttir, Haukum Helena Sverirsdóttir, Haukum Hrefna Stefánsdóttir, Haukum Kristrún Sigurjónsdóttir, ÍR Lilja Oddsdóttir, KR María Ben Erlingsdóttir, Keflavík Ólöf Helga Pálsdóttir, Grindavík Pálína Gunlaugsdóttir, Haukum Petrúnella Skúladóttir, Grindavík Sara Pálmadóttir, KFÍ Sigurlaug Rúna Guðmundsdóttir, Njarðvík Ösp Jóhansdóttir, Haukum