24 júl. 2003Næstkomandi mánudag 28 júlí, verður haldið körfuboltanámskeið fyrir krakka á aldrinum 10-17 ára í Íþróttamiðstöðinni í Þorlákshöfn. Námskeiðinu stjórna Pétur Guðmundsson, hæsti körfuknattleiksmaður Íslands fyrr og síðar og fyrrverandi leikmaður með NBA-meisturum San Antonio Spurs og Los Angeles Lakers, ásamt Ágústi Björgvinssyni, aðalþjálfara U85 landsliðs stúlkna, sem mun keppa í Promotion cup í ágúst. Á námskeiðinu verður farið yfir undirstöðuatriði körfubolta svo sem boltatækni, knattrak, sendingar, skot og fótaburðaræfingar. Námskeiðið verður frá 18-21 og kostar 3.000 kr. Þeir sem hafa áhuga á að mæta, vinsamlegast skráið ykkur með því að senda tölvupóst á peturk@simnet.is eða sendið SMS á Pétur í GSM 895-1058.