25 maí 2003AND 1 körfuboltabúðir verða haldnar í DHL-höllinni við Frostaskjól dagana 3.-6. júní nk. eða frá þriðjudegi til föstudags. Búðirnar eru ætlaðar fyrir 12-18 ára krakka og standa frá 17:00-20:30 á kvöldin. Verðið í búðirnar er 6.500 kr. Yfirþjálfari körfuknattleiksbúðanna er Ágúst S. Björgvinsson. Ágúst hefur starfað við virtar körfuknattleiksbúðir í Bandaríkjunum svo sem Five star búðirnar (einar af elstu og virtustu körfuknattleiksbúðum í Bandaríkjunum) og körfuknattleiksbúðir Duke háskólans (Duke háskólinn var NCAA meistari 2001). Uppbygging körfuknattleiksbúðanna í KR-heimilinu verða að fyrirmynd þessara bandarísku körfuknattleiksbúða. Meðal annars verður stöðvaþjálfun, fyrirlestrar og leikir. Margir þekktir þjálfarar munu koma í heimsókn í körfuknattleiksbúðirnar. Skráning og greiðsla fer fram við byrjun námskeiðs Frekari upplýsingar er hægt að fá með því að senda tölvupóst á netföngin: asb@visir.is