22 maí 2003Fyrirtækin Esso, Lýsing og Hópbílar hafa með myndarlegum stuðningi gert KKÍ það kleyft að bjóða öllum landsmönnum ókeypis á landsleikina við Norðmenn sem fram fara nú um helgina. Er þetta ekki í fyrsta sinn sem þessi fyrirtæki taka höndum saman og bjóða körfuknattleiksunnendum ókeypis á landsleiki. Nú er bara að nýta þessa kjarabót - skunda á næsta leikstað, skemmta sér og styðja íslensku landsliðin. Leikið verður í Keflavík föstudaginn 23. maí og fer kvennaleikurinn fram kl. 18.00 og karlaleikurinn kl. 20.00 Laugardaginn 24. maí verður leikið í DHL - Höllinni við Frostaskjól (KR-húsið). Kvennaleikurinn hefst kl. 14.30 og karlaleikurinn kl. 16.30. Sunnudaginn 25. maí verður leikið á Ásvöllum. Kvennalelikurinn hefst kl. 18.00 og karlaleikurinn kl. 20.00 Áfram Ísland!!!!! Myndin er af Loga Gunnarssyni.