20 maí 2003Regnbogabörn héldu í gær blaðamannafund þar sem þau kynntu landssöfnun sína, átak sem kallast „Draumur að veruleika“. Söfnunin mun standa yfir frá 19. maí til 9. júní. Draumur regnbogabarna er þríþættur: 1) Að þjónustumiðstöð Regnbogabarna sem þjóni öllu landinu verði að veruleika í húsi stofnunarinnar að Mjósundi 10 í Hafnarfirði. 2) Að hægt verði að ráða sérfræðinga til að byggja upp og móta þá þjónustu sem helst ríður á að hafa til taks fyrir þá sem á þurfa að halda. 3) Að hægt verði að koma á laggirnar víðtækri þjónustu fyrir einstaklinga og hópa á landinu öllu, með því að bjóða upp á m.a. námskeið, fyrirlestra og fræðslufundi. Leikmenn og aðstandendur kkd. Þórs á Akureyri munu síðan leggja sitt af mörkum til fjáröflunarinnar með því að drippla í kringum landið og safna áheitum á dripplarana frá fyrirtækjum. Lagt verður upp frá Egilsstöðum í tveimur hópum föstudaginn 6. júní. Annar hópurinn fer norðurleiðina og hinn í suður. Stoppað verður á nokkrum stöðum og stendur KKÍ fyrir uppákomum þar, s.s. ýmis konar keppnum. Báðir hóparnir munu svo koma til Reykjavíkur upp úr hádegi þann 9. júní (annar í hvítasunnu). Þar verður tekið á móti þeim í Laugardalnum með Streetball móti og grillveislu. Söfnunin mun standa yfir í 3 vikur og verða nýjar auglýsingar sýndar í fjölmiðlum með einstaklingum úr ýmsum áttum. Í auglýsingunum kemur fram sérstakt söfnunarnúmer sem almenningur getur hringt í og stutt þannig við bakið á Regnbogabörnunum með sínu fjárframlagi. Við hvert símtal renna 1000 kr. til söfnunarinnar. Söfnunarsíminn er 511-2580 Reikningsnúmer Regnbogabarna er 301-26-50100