12 maí 2003Nýlega boðaði lyfjaeftirlit ÍSÍ sex körfuknattleiksmenn til lyfjaeftirlits í keppni. Um var að ræða leikmenn sem tóku þátt í úrslitakeppni Intersport-deildarinnar og 1. deildar kvenna. Niðurstöður liggja nú fyrir. Engin lyf á bannlista fundust í sýnunum. Eftirtaldir íþróttamenn voru boðaðir til eftirlits: Þorsteinn Húnfjörð UMFN Gunnar Einarsson Keflavík Gregory Harris UMFN Magnús Þór Gunnarsson Keflavík Stefanía Helga Ásmundsdóttir UMFG Kristín Arna Sigurðardóttir KR