6 maí 2003Haukar fá tvo þjálfara Bandaríkjunum í heimsókn nú í maí. Þeir halda þjálfaranámskeið laugardaginn 25. maí í íþróttahúsinu við Strandgötu. Þjálfararnir eru frá TCU háskólanum í Texas. Larry Tidewell er aðstoðaryfirþjálfari kvennaliðsins þeirra og Sean McShane er framkvæmdastjóri kvennakörfubolta skólans. Saman hafa þeir mikið til málana að leggja- og Larry á að baki langa reynslu í þjálfun. Námskeiðið/fyrirlesturinn stendur frá kl. 10-14 og er dagskráin þessi: 1.) Kynning á háskólaboltanum í USA (áhersla á kvennadeildina) - 20 min 2.) Kynning á þeim reglum sem gilda um skólastyrki og möguleika ungra leikmanna á skólagöngu í USA - 30 mín. 3.) TCU sóknarstíll - 30 mín. 4.) Guard Play - 20 mín. 5.) Post Play - 20 mín. Hádegisverðarhlé 6.) Æfingar f. Post leikmenn - 90 mín í íþróttasal. Sýnikennsla með leikmönnum. Námskeiðið verður í Íþróttahúsinu í Strandgötu og kostar 5.000- pr. þáttakanda. Innifalin eru námskeiðsgögn, T-bolur og hádegisverður. Hægt er að skrá þáttöku á í tölvupósti til sverrir@skyrr.is